Eyðublöð

Síðast uppfært: 25.08.2022.

Hér fyrir neðan eru eyðublöð sem varða skjalavörslu og skjalastjórn afhendingarskyldra aðila. Athugið að sum eyðublöð þarf að hlaða niður til að opna þau, sækið eyðublöðin með því að hægri-smella á táknmyndina og velja „Save link as…“ eða „Save target as…“ og vistið þannig eyðublaðið í tölvuna og opnið það þaðan til útfyllingar.

Eyðublöð vegna afhendingar pappírsskjalasafns

Beiðni um afhendingu pappírsskjalasafns

Afhendingarskyldir aðilar til Þjóðskjalasafns Íslands þurfa að senda beiðni um afhendingu pappírsskjalasafns óski þeir eftir að afhenda pappírsskjöl til safnsins til varanlegrar varðveislu og skal það gert í gegnum vef Ísland.is. Til þess að afhendingarskyldur aðili geti sent inn beiðni um afhendingu pappírsskjalasafns þarf hann að hafa Íslykil. Þá þarf afhendingarskyldur aðili að veita starfsmanni sem sendir inn beiðnina umboð í gegnum vef Ísland.is. Sjá nánari leiðbeiningar um það. Starfsmaður afhendingarskylds aðila skráir sig svo inn á sínum rafrænu skilríkjum og sendir beiðni um afhendingu pappírsskjalasafns í umboði viðkomandi afhendingarskylds aðila.
Beiðni um afhendingu pappírsskjalasafns.

Geymsluskrá fyrir pappírsskjalasafn

Geymsluskrá fyrir skráningu pappírsskjalasafna (Excel-skrá) Athugið að hlaða þarf skjalinu niður á tölvu, „Save link as…“ eða „Save target as…“

Fylgiskjöl með afhendingu pappírsskjalasafns

Eyðublöð vegna tilkynningar á rafrænu gagnasafni

Tilkynna skal rafræn gagnasöfn í gegnum vef Ísland.is. Til þess að afhendingarskyldur aðili geti tilkynnt rafrænt gagnasafn þarf hann að hafa Íslykil. Þá þarf afhendingarskyldur aðili að veita starfsmanni sem tilkynnir rafræna gagnasafnið umboð í gegnum vef Ísland.is. Sjá nánari leiðbeiningar um það. Starfsmaður afhendingarskylds aðila skráir sig svo inn á sínum rafrænu skilríkjum og tilkynnir rafrænt gagnasafn í umboði viðkomandi afhendingarskylds aðila.

Tilkynning á rafrænu gagnasafni.

Eyðublöð vegna skjalavistunaráætlunar

Eyðublað fyrir skjalavistunaráætlanir (Excel-skjal) Athugið að hlaða þarf skjalinu niður á tölvu, „Save link as…“ eða „Save target as…“

Eyðublöð vegna grisjunarbeiðnar

Grisjunarbeiðni þarf að fylla út í gegnum Ísland.is. Til þess að afhendingarskyldur aðili geti sent inn beiðni um grisjun þarf hann að hafa ÍslykilÞá þarf afhendingarskyldur aðili að veita starfsmanni sem sendir inn beiðnina umboð í gegnum vef Ísland.is. Sjá nánari leiðbeiningar um það. Starfsmaður afhendingarskylds aðila skráir sig svo inn á sínum rafrænu skilríkjum og sendir beiðni um grisjun í umboði viðkomandi afhendingarskylds aðila.

Eyðublöð fyrir grisjunarbeiðni á Ísland.is.

Eyðublöð fyrir samþykki skjalageymslu

Samþykki skjalageymslu (Word-skjal) Athugið að hlaða þarf skjalinu niður á tölvu, „Save link as…“ eða „Save target as…“

Eyðublað vegna afhendingar á skjölum þrotabús/dánarbús

Geymsluskrá fyrir skráningu á skjölum þrotabús/dánarbús (Excel-skjal) Athugið að hlaða þarf skjalinu niður á tölvu, „Save link as…“ eða „Save target as…“

Eyðublað vegna afhendingar á sjúkraskrám

Geymsluskrá fyrir skráningu á sjúkraskrám (Excel-skrá) Athugið að hlaða þarf skjalinu niður á tölvu, „Save link as…“ eða „Save target as…“

Skjáskot úr eyðublöðum sem eru hýst á Ísland.is

Hér á eftir fara pdf skjöl sem innihalda skjáskot úr eyðublöðum um grisjunarbeiðnir, afhendingarbeiðni pappírsskjalasafna og tilkynningu á rafrænum gagnasöfnum.

Skjáskot úr grisjunarbeiðni fyrir pappírsskjöl.

Skjáskot úr grisjunarbeiðni fyrir rafræn gögn.

Skjáskot úr afhendingarbeiðni fyrir pappírsskjöl.

Skjáskot úr tilkynningu á rafrænum gagnasöfnum.