Umbúðir

Síðast uppfært: 27.01.2023.

Afar mikilvægt er að ganga frá og pakka pappírsskjölum í viðurkenndar umbúðir sem tryggja vörslu þeirra til framtíðar.

Sérstakar öskjur eru notaðar við vörslu skjala sem geyma á til frambúðar. Askjan er hönnuð til hlífðar, auk þess að vera úr efni sem eyðileggur ekki skjölin. Efni sem notuð eru við framleiðslu á skjalaöskjum eiga að uppfylla alþjóðlegan staðal, ÍST EN ISO 9706, auk þess að uppfylla önnur skilyrði staðals SS 62 81 07, sem á við um skjalaöskjur í stærðunum A4, folio og A3.

Það er nauðsynlegt að skilja skjölin í öskjunni vel að. Til þessa eru notaðar málsmöppur eða arkir úr pappír sem uppfyllir kröfur ÍST EN ISO-9706. Nota má 120 gr./m2 arkir af stærðinni 460 x 300 mm, sem henta fyrir skjöl í A4 stærð, eða arkir af stærðinni 460 x 360 mm, sem henta fyrir skjöl í folio stærð. Arkirnar eru brotnar saman og notaðar sem málsmöppur.

Viðurkenndar umbúðir er hægt að kaupa hjá ýmsum aðilum á borð við fyrirtækið Hvítlist hf. og Klug-Conservation. Sjá einnig nánari upplýsingar um umbúðir og forvörslu pappírsskjala.