Rafrænt dagbókarkerfi

Síðast breytt: 07/10/2021
Slóð:

Rafrænt dagbókarkerfi er eitt af eldri heitum á rafrænu gagnasafni sbr. reglur nr. 877/2020 um tilkynningu, samþykkt og skil á rafrænum gagnasöfnum afhendingarskyldra aðila. Rafræn dagbókarkerfi höfðu oftast þann tilgang að varðveita málaskrá og til þess að skrá upplýsingar um gögn í málasafni. Þar voru því ekki varðveitt skjöl. Þetta kerfi hefur sama tilgang í dag þó notað sé hugtakið rafrænt gagnasafn um það.

Sjá einnig Málaskrá og Rafrænt gagnasafn.

Var efnið gagnlegt?
Nei | 0 0 af 0 fannst skýringin gagnleg.
Skoðað: 93