Námskeið

Frágangur, skráning og afhending pappírsskjala

Síðast uppfært: 30.03.2021.

Átak í skjalavörslu og gerð skjalavistunaráætlunar.

Hvenær: 23. febúar 2021, kl. 10:00 – 11:00
Hvar: Facebook, slóð á námskeiðið verður send til skráðra þátttakenda
Kennsla: Árni Jóhannsson
Fyrir hverja: Skjalastjóra opinberra stofnana
Verð: Ókeypis

Þetta námskeið verður kennt í vendikennslu. Þeir sem vilja sitja námskeiðið þurfa að horfa á myndböndin um frágang skráningar og afhendingu pappírskjalasafna og mæta síðan á námskeiðið með spurningar um vandamál sem þeir eiga við að etja í frágangi á pappírsskjölum í sínu skjalasafni.

Í myndböndunum er farið yfir reglur og leiðbeiningar Þjóðskjalasafns Íslands um frágang og skráningu pappírsskjalasafna. Leiðbeint er um gerð geymsluskrár og val skjalaumbúða. Einnig fjallað um skjalageymslur og hvað hafa ber í huga við langtímavarðveislu skjala.

Undirbúningur
Horfa þarf á myndböndin hér að neðan áður en námskeiðið hefst.