Námskeið

Síðast uppfært: 13.11.2024.

Þjóðskjalasafn Íslands stendur fyrir námskeiðum um skjalavörslu og skjalastjórn afhendingarskyldra aðila. Upplýsingar um námskeið og skráningu á þau má finna hér að neðan.

Öll námskeið verða kennd í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams. Tengill á námskeiðið verður sendur út á skráða þátttakendur í aðdraganda námskeiðisins.

Öll námskeið verða kennd á milli kl. 10 og 11 nema annað sé auglýst og eru endurgjaldslaus fyrir þátttakendur.

Smellið hér til að skrá ykkur á námskeið Þjóðskjalasafns Íslands

19. nóvember 2024 kl. 10-11. Við þurfum að sjá allt skjalasafnið. Gerð skjalavistunaráætlunar.

Umsjón: Árni Jóhannsson

Farið er yfir það hvernig best sé að fylla út í skjalavistunaráætlun. Farið verður yfir hagnýt ráð, reglur sem eru í gildi, hvað þarf að hafa í huga og hvar sé best að byrja. Námskeiðið helst í hendur við námskeið um átak í skjalavörslu.

26. nóvember 2024 kl. 10-11. Tilkynningar á rafrænum gagnasöfnum.

Umsjón: Heiðar Lind Hansson og Fanney Sigurgeirsdóttir.

Á námskeiðinu verður fjallað um feril tilkynninga á rafrænum gagnasöfnum skv. reglum nr. 877/2020 um tilkynningu, samþykkt og skil á rafrænum gagnasöfnum afhendingarskyldra aðila. Fjallað verður um gerð tilkynningar, notendahandbókar og tæknilegra gagna.

7. janúar 2025 kl. 10-11. Hverju má henda? Um grisjun skjala úr skjalasöfnum afhendingarskyldra aðila skv. lögum og reglum

Umsjón: Árni Jóhannsson

Á námskeiðinu verður farið almennt yfir helstu lög og reglur sem gilda um grisjun, hverju má eyða, hverjar heimildir til grisjunar eru og hvernig sótt er um grisjunarheimildir.

21. janúar 2025 kl. 10-11 Sameining afhendingarskyldra aðila tilfærsla verkefna: nokkur góð ráð

Umsjón: Árni Jóhannsson og Heiðar Lind Hansson

Á námskeiðinu verður farið yfir það að hverju skuli huga að í skjalamálum afhendingarskyldra aðila þegar breytingar verða á starfsemi þeirra. Þá er átt við sameiningu afhendingarskyldra aðila, tilfærslu verkefna innan ríkisins ásamt niðurlagningu stofnana og einkavæðingu fyrirtækja í eigu ríkisins. Gott er að lesa leiðbeiningarritið Sameining ríkisstofnana, færsla verkefna, niðurlagning og einkavæðing ríkisaðila. Leiðbeiningar um skjalastjórn og skjalavörslu.

28. janúar 2025 kl. 10-11. Afhendingar úr rafrænum gagnasöfnum.

Umsjón: Fanney Sigurgeirsdóttir og Heiðar Lind Hansson

Á námskeiðinu verður fjallað um feril afhendinga vörsluútgáfa úr rafrænum gagnasöfnum skv. reglum nr. 100/2014 um afhendingu á vörsluútgáfum gagna úr rafrænum gagnakerfum afhendingarskyldra aðila. Fjallað verður um að hverju þarf að huga að þegar kemur að afhendingu, hvernig ferillinn fer fram og nýja nálgun Þjóðskjalasafns á áminningar um skil skv. afhendingaráætlun safnsins.

4. febrúar 2025 kl. 10-11. Undirbúningur og gerð vörsluútgáfu.

Kennari: Fanney Sigurgeirsdóttir og Haukur Kristófer Bragason

Á námskeiðinu verður farið yfir nokkur atriði sem auðvelda vinnu við gerð vörsluútgáfu og umbreytingu gagna. Farið verður yfir helstu áskoranir þegar kemur að frágangi og umbreytingu á ýmsum skráarsniðum og hvaða ráð eru best fyrir umsjónarfólk skjalasafna til að greiða fyrir afhendingu og gerð vörsluútgáfu.

11. febrúar 2025 kl. 10-11. Innra eftirlit í rafrænum gagnasöfnum.

Kennari: Heiðar Lind Hansson

Samkvæmt 18. gr. reglna um tilkynningar á rafrænum gagnasöfnum nr. 877/2020 eiga afhendingarskyldir aðilar að hafa eftirlit með skráningu samkvæmt reglum um skráningu mála og málsgagna afhendingarskyldra aðila ásamt því að hafa eftirlit með skráarsniðum sem eru skráð í gagnasafnið og að þau séu leyfð í notendahandbók. Á námskeiðinu verður farið yfir að hverju þurfi að huga að í eftirlitinu og þá verður farið yfir aðferðir við gæðamat og skoðun skráarsniða. Einnig verður komið inn á hvernig skjalastjórar og umsjónarfólk skjalasafna afhendingarskyldra aðila geta stuðlað að aukinni meðvitund um gildi skjalavörslu og skjalastjórnar meðal notenda rafræns gagnasafns.